Óski Póski
Must fyrir fótboltamanninn
14.10.2006 01:36:00 / oskiposki

Blogg??:D

Hehe.. já þetta er ég Óskar.. hef ekki bloggaðí tja svona sirka 4 mánuði og var nú reyndar hættur með síðuna en mér leiðist það óeðlilega mikið að ég ákvað að skella inn einu bloggi... Ótrúlega mikið búið að vera að gerast hjá manni undanfarið og það er ómögulegt að segja frá því öllu í einu bloggi:).

Það er náttúrilega snilld í MA og bekkurinn bara mjög fínn.. til að byrja með var ég bara afhverju lenti ég í þessum bekk? En síðann eru bara allir mjög fínir sko. Var að koma úr skólaferðalagi með bekknum og það gekk bara mjög vel.. eg vann 4 í fótbolta spilinu um að hoppa út í vatnið en hellvítis kjellingarnar stóðu ekki við orðin útaf kuldanum! Það var nátturilega snilld um nóttina.. þegar flestir voru sofnaðir um 6 leitið var ég eitthvað spjallandi við Axel kjellinn og hann er alveg ótrúlegur.. ég fékk spuriningar eins og Óskar er ég ljótur:D? Er ég nördalegur? Svo var hann eitthvað dansandi í kójunni og var að spurja mig hvort mig langi ekki stundum að sleppa fram af mér beislinu og byrja að dansa eins og brjálæðingur.. Ég er nokkuð viss um að Axel eigi aðeins of margar tölvur en annars er hann mjög fínn.;)


Axel in a party..Sjóðandi heitur að venju

Image and video hosting by TinyPic


Hápuntkurinn i ferðinni var síðan um miðja nóttina þegar allir voru sofnaðir fékk eyjólfur sinadrátt í kálfann og missti sig og öskraði eins ogbrjalæðingur fokk fokk aaaaaaa... hehe.. ég héllt að það væri verið að lúberja einvhern í herberginu og þótt ég segi sjalfu frá þá var ég hálf smeykur.. heheh flestir vöknuðu geggjað myglaðir bara hvað er í gangi.. Ægi vá ég er ábyggilega að drepa ikkur úr leiðindum með þessari sögu en þetta var svona had to be there dæmi.:D
Einnig var mikið talað um þegar Þórey missti sig um kveldið en hún lá víst eitthvað nakin í kójunni sinni og kallaði á mig.. þetta er allavega það sem ég heirði:lol:


Þórey eitthvað að perrast.. As usual

Image and video hosting by TinyPic


hellingur búið að vera að gerast undanfarin mánuðinn Sveitt partý hjá bennz-Geggjað busapartý á ytri vík með 4 bekk-Skitið á sig í stærðfræði prófi-Verið mikið veikur- en ægi þetta átti að vera einvhver geðveikt runa en ég man svo lítið eins og er þannig að..


Búinn að vera í sirka 2 mánaða frí með fótbolatnum þar sem að við byrjum að æfa með mflk eftir hálfann mánuð og vá hvað þessi gaurar verða teknir öxl í öxl hehe nei nei..en fáum reyndar að æfa með 3 flokk þangað til þannig þetta reddast

Ég hef verið kosið súkkat bekksins í nátturfræði. Haha.. við erum semsagt i keppni við J bekkinn og mín svör eru semsagt ekki talinn með í keppninni hehe ég hef átt mínar stundir og móment ég neita því ekki og ég man þegar Anna Sif sagði í náttúrufræði að hún gæti alveg eins verið með froðuplasti í þessu hópverkefni og mér og by the way Anna þá særði þetta.. þetta særði mjög djúpt sko:cry:... Ég fór reyndar á kostum í einum lífsleikni tíma þegar ég misskyldi eitthvað leikinn og þessi saga var ekki lengi að fréttast út um allann skólann Við skulum ekkert fara meira út í það hér í þessu bloggi.

Ég er með besta sætisfélaga sem sögur fara af.. hann á hver önnur gull kornirn á fætur öðrum og það var geggjað þegar að penni sprakk framann í eyjolf í tímaog danni héllt hann hafi veri að teikna á allar tennurnar í sér eheh:D

Fyrst það var nýr skóli og nýr flokkur þá var kominn tími á nýja klippingu og ég er samsagt orðinn dökkhærður. Þessi helgi búin að vera frekar döpur... ég ér ný kominn úr bíó af jackass 2 og alltaf jafn gamann afþví að sjá fullorðna menn skíta á sig og kúkandi á dúkku hús og fleira;)

 

Lag bloggsins: Stone Sour-Through The Glass.. Sveitt lag hér á ferð... Annað geggjað lag sem allir eiga að ná í er Fort Minor: Remember The Name.. snillldar lag hér á ferð...

 

 

En heirðu þetta var kanski bara svona one time blogg en ef að ég fæ helling kommentum eru allar lúkur á því að ég skelli inn örðu bloggi mjög fljótlega....
Kommenta
****

 

Skari Dökkhærður?

 

Image and video hosting by TinyPic

» 14 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 23:59:45 / oskiposki

Is It Love

Daldið langt siðann ég hef bloggað en núna kemur eitt stutt held ég. Ekki mikið verið að brasa annað en að vinna á fullu og svo var essomotið buið að vera og natturilega HM. Ég tapaði einhverjum smá pening um helgina þegar Frakkarnir töpuðu fyrir italíu en þetta var hinn fjörugasti leikur og vá eru til orð sem að lýsa Fabio Cannavaro? Vá þvílikur snillngur!!

Allavega A liðið er komið í mjög slæma stöðu eftir Tap gegn ÍR um daginn ég kom inna i vörnina og það var bara fínt, Vandræðin okkar i sumar hafa verið að nýta færin okkar, Okkur vantar klárlega einn latan Nistelroy i frammlínuna til að klára þetta en ég held þetta hljoti að fara að koma. Allveg óskyljanlegt að maður sé ekki settur fram þar sem að maður hefur verið markahæstur í þessum árgangi frá því i 7 flokk hehhe en svona er þetta baraJ 

Spilaði siðan um daginn Með b lidinu gegn Leiftri Dalvík og það var mjög skemmtilegur leikur, Sennilega í 1 sinn i allt helvitiss sumarsem að ég er sáttur með frammistöðuna mína á vellinum, Setti meira að segja eitt stykki mark og mér fannst ég hefði átt að gera annað en ég var eins og ég segi sáttur í leiks lok.

Var að vinna á Hótel KEA alla helgina og það var svona lala meina að lykta eins og að hafa farið í sund á ruslahaugunum er kannski ekki jobbið fyrir mig en maður fær þó allavega einhverrja aura þarna. Var að brjálast þar sem að Kokkarnir spiluðu ekkert nema rokk allan timann svo allt í einu var ég einn i Eldhúsinu þannig að ég lét Ofcourse Fm í botn og var eitthvað að dilla mer og vaska upp, lenti síðann í því að einn kokkurin horfði á mig syngja eitthvða smá með Everytime We Touch og hann varð alveg brjálaður, Sagði að þessi stöð væri alveg mannskemmandi og því fyrr sem að ég fattaði það því betra! Ég sagði honum bara að hleypa hnakkanum sínum út og stein grjóthalda kjafti hahaJ Allavega það endaði með því að við létum einhvern þungarokka disk á en eg nýtti alltaf tækifærin þegar þeir fórum fram.

Vá er smá pirraður Þórsara druslurnar eru að rústa þessari deild meðan að við erum að skíta á okkur!! Ef einhver hefði sagt þetta við mig fyrr i vetur hefði ég hlegið að honumL

Whaaaaaat???? Eru einhverjir aðrir en ég alveg að brjálast útaf endanum á Prison Break? Ég er bara ekki búinn að ná mér sko!! En Vá ég get ekki beðið eftir næstu Seríu:D Eru til Betri þættir? Neibb held barasta ekki.

Marta tvíbbó að koma heim á morgunn þannig að þessi 10 daga paradís er að ennda haha:p nei okei eg ætla ekki að vera svona harður fínt að fá hana aftur sko

Æg held að ég Fari að segja þetta gott og skelli inn öðru bloggi fljótleg.

Lag blogssins: DR mister and Mr handsome: Is it love. Vá þvílikt snilldar lag og geggjaður texti!!!! Allir að ná í þetta lag og ég minni fólk líka á að download Orson: No Tomorrow

Kommenta:D:D

Moment bloggsins: Sennilega að skora um daginn. Þetta var langþráð mark

 

 

Flottur Pólobolur: 4990

Gallabuxur: 13990

Playstation 2 tölva: 14990

Myndavél: 22990

Phorce jebbi: 13 milljónir.

Manchester United: ÓMETANLEGT


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 15:38:32 / oskiposki

Ótrúleg Atvik!

Guess whose back. Jájá margt búið að vera um að vera undanfarið. Var að spila með B lidinu a móti Tindastól um daginn og já það má segja að það hafi verið skrautlegt. Var settur i miðvörð8| og það var alveg svosem fint sko. Leikurinn var ósköp jafn en þeir komust yfir með skyndisókn og ég held að ég hafi  spilað manninn réttstæðann er ekki viss L Allavega þá sótum við mjög mikið það sem eftir er og þeir áttu ekki mikið i leiknum eftir markið. Heirðu þegar allt er í járnum er stungusending hjá Tindastól og ég hleip bara að boltann og ætla að hreinsa!! Nei nei helduru að ég hafi ekki kikksas boltann og flógið á rassgatið:lol:. Um leið og þeta gerðist þá hugsaði ég Guð Ef þú elskar mig pleas láttu gaurinn klikka. Frammherjinn þeirra nær boltanum eftir kikksik mitt og kemst i dauðafærið og skítur í staung og ég bara Fokk en nei þá fylgir einhver gaur þarna efitr og skorara 2-0! Klaufalegustu mistökin mín á minni ævi staðreynd:evil: og eftir þetta gat ég varla talað í vörninni¨:$¨¨Við minnkuðum reyndar muninn og vorum nállægt því að jafna en 2-1 fyrir tindastól!!
Heirðu Var þetta ekki nógu mikill óheppni yfir 1 dag? NEI greinilega ekki! Eftir sturtu eftir leikinn fer ég eitthvað fram bara á handlklæðinu að spjalla við stákana þá kemur einhver hálfviti hei Tökum handklæðið af honum:frown:! Ég birja að spretta inn í sal og allir á eftir mér! Sissi alveg að ná mér þannig ég fer innn i Tindastóls klefann og Sissi á eftir mér! Ég ætlaði að hlaupa í gegnum klefann og svo Byrja ég eitthvað að renna á flísunum!! Flýg síðann á rassgatið og renn eftir gólfinu beint á vegginn hja sturtunum og lenti svona skemmtilega á hnénu:^) Á meðann ég lygg þarna nakinn eitthvað öskrandi þá eru Gaurarnir Í Tindastól gjörsamlega að missa sig af hlátri! Ég lygg þarna eins og hálfviti fyrir framann þá hjá sturtunni og þeir bara eru að ærast af hlátri, þá öskrar einn eitthvað HAHAH : Akkurat þar sem ég hellti sápunni á gólfið¨. Ægi vá hvað mig lángaði að jörðinn mundri gleypa mig þarna! Um kveldið og allan næsta dag haltraði ég eithvað um enda ekkert pínu högg sem ég fékk þarna á mig!
Þegar ég fór að sofa þá vonaði ég að ég ætti aldrei eftir að upplifa annan eins Ógeðslegann dag.
En já ég er að vinna a fullu a greifanum i eldhúsinu og gengur bara vel (Grínast með gellurnar þarna?:haha:). Ég fæ líka vaktir inn í sal að þjóna!þannig þetta er bara snelld sko. Mjög skemmtilegt fólk þarna á ferð og að mér skylst þá er alltaf staffa party hjá þeim og sonna skemmilegheit!
Heirðu lenti í einu skemmilegu atviki! Var búinn að svara í símann og gaurinn í símanum var búinn að segja sorry vittlaust númer! Heirðu ég bara ok. Þá öskrar ein gellan þarna  á mig ekkrt smá og ég bara sjitt hvað hef ég gert! Þá Öskrar hún Óskar!! Við vinnum ekki á fkn Jóni sprett!! AHHA. Þá hefði ég sagt jón sprettur get ég aðstoðað í símann. Kokkarnir voru allir að spurja mig hvort ég væri að svíkja lit og eitthvað haha.
Næsta dag sagði ég við Hauk Heidar að ég væri í mjög mikilvægu starfti þarna og hann bara já þú vaskar upp og svara í símann! Your the man!! Ægi vá þetta var ekki eðlilega fyndið á staðnum!
En já á líka að fara að vinna í kveld þannig aldrei að vita nema það komi skemmtileg saga á morgunn.
Ætla að segja þetta gott í bili! Og vona að þessi óheppni fari að enda hjá mér8).
Lag dagsins: The all-American Rejects:: Move Along. Vá fokk þetta er ekki eðlilega flott lag sko!! Allir að ná í það!
Maður bloggsins: Ægi bara allt starfsfólkið á Greifanum Nema Munda sem hefur einfaldlega ekki útlitið með sér greiið.
Mission dagsins: Ætla að missa bakka af glösum fyrir framann Mundu og segja úpps my bad:p Og segja síðann rispunni að stein grjóthalda kjafti taka þetta upp.:haha:
Skari´s Out. Kommenta síðann skylda:!:

» 11 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 12:22:16 / oskiposki

Geggjuð helgi

Allt að gerast hm á fullu og svona sem að er bara ólýsanlegur mánuður, eitthvað sem ekki er hægt að lýsa.
Á föstudaginn var horft á bolta og farið svo á Pál Óskar um 12 leitit. Skemmtilegast var eftir ballið en þá var farið aðeins út þar sem fólkið hljóp um allt túnið til að fylgjast með öllum slagsmálunum. Þar stóð up úr þegar að Hildur og einhverjar 2 trukkalessur  voru að slást og allt sauð upp úr, ein trukka lessan var eittvað að misa sig þarna og allir biðu eftir að löggan tæki hana þá hellir hún bjór yfir Bigga heirðu löggann negglir hana niður, og allir svona líta á hvorn annan heirðu birja ekki allir að syngja Óle óle óle óle óle óle, AHHA þetta var hálfgerð lífsreynsla að fylgjast með þessu. Nóg af þessi kveldi, ábbyggilega hægt að skrifa heila bók með skemmtilegum uppatökum þarna og einvherjum fightum en allavega þá kom ég heim eitthvað að verða  Og Þurfti svo að vakna um 10 útaf eitthverju matarboði hja ömmu og afa, maður var ekki beint hress og fór beint upp í rúm eftir matinn. Vaknaði svo til þess að horfa á leikinn Ísland-svíðþjóð þar sem að Íslendingar sýndu enn og aftur hversu magnaðir þeir eru og lögðu Svía Grýluna, fór svo eitthvað aðeins heim og svo down town um 10 leitið. Var ekkert voða spennandi fyrst, var eitthvað með Jón þóri og co, eitthvað með Garðari og co og eitthvað með Unni en náði aldrei að festa mig í sessi í neinum af þessum hóp þar sem að eg var að reina að finna Hauk tvíbba og Víking. Ekki að grínast en ég sá alla svona 1000 sinnum nema að ég sá þá  aldrei, var alveg að brjálast á þessu og fór að gefa upp vonina. Hitti þá Meistara Pál Arnar og félaga hanns og ég hékk með þessum nöglum í töluverðann tíma, ,Fékk að heira margar efnilegar sögur og þetta var bara geggjað stuð. Páll Arnar var eitthvað að reina að skapa nafn fyrir mig í bænum. Rölti að fólk og sagði varstu að bögga þennan? Hann getur sko barið þig í klessu þessi köggull hehe . Og ég geggjað harður bara strákar ég vill engin leiðindi sko ahah. Þegar við fórum svo aftur í bæinn sá ég Hauk og Víking og ég bara finally, Allavega var kerling á torginu, sem að rölti að öllum og sagði hei á ég að segja þér dáldið: Öskraði svo púngur og barði gaurana í púnginn AHAHA vá það var æðislegt.. Vá á þessum tíma kl svona 3 var maður svona að komast í góða skapið. Allstaðar gaurar að hringja og safna liði til að berja Jón og Séra Jón og allt brálað. Ég og steinþór stóðum eitthvað og gaur biður steinþór trukk um númerið sitt til að berja gaur og ég bara jó want my number man haha Gaurinn sendi mer augnaráð og ég bara smá djók.
 Ennhvern tímann hlaupa allir upp  brekku þarna þá er verið að berja gaur, og verið að reina að  velta bílnum hanns og eitthvað. Allt brjálað og bara allir að missa sig, vá það var sko gamann. Líka 7 gaurar i svörtum peisum sem stóð á bling bling réðust allir á einn nettann gaur sem að var að berjast á móti og skallaði aðall gaurinn það var að blóð var út um allt. Ég var að kúka á mig mig langaði svo að hjalpa gaurnum en ég veit ekki afhvejru en ég ákvað að vera ekki að skippta mér mikið að því. Þá mætir Elí aðall kallinn með flösku og bara hei hvað er í gangi og  nær eitthtvað að stoppa þetta.
Sjálfur fatta ég ekki afhverju fólk er að slást svona, Afhverju eru ekki allir bara Budds? Why? Meina þú berð X, þá nær X í félaga sína og stútar þér. Þá hringir þú í Binna frænda og hann nær í Koppa félaga og þeir stúta gaurunum, hringja þeir ekki i einhverja risa klíku og stúta þeim. Svona gengur þetta oft fyrir sig sko. Adlrei ætla ég að lenta þarna á milli sko þegar maður er eldri, Nei takk! Enda hélt ég ró minni allt kveldið og var með engin leiðindi, manni langaði það á köflum þar sem að maður var kominn með all svakaleg hook upps,. Ég held ég fari að segja þetta gott. En já eitt enn! Er kominn með vinnu á greifanumJ var líka að spila með B lidinu a moti völsung þar sem að ég var Ömurlegur og ætla ég ekkert að ræða það neitt meira.
Ægi vá ég fatta núna að þettva var kannski frekar booring blogg en eg nenni ekki að gera annað nunaJ set þetta bara inn
Maður bloggsins: Haukur tvíbbi ekki spurning! Ekki eðlilegt hvað hann var fyndinn um helgina.
Lag bloggsins: Orson: No Tomorrow, Ægi bara fínasta lag., Buttons: Pussycat dolls
Kommenta: Later

 

 



» 6 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 00:11:00 / oskiposki

Sjálfsmorðskanínan:D:D Vá sú er þunglynd:p

Já ég vildi bara deila þessu með ikkur, Allavega ætla ég ekkert að vera að hafa þetta lengra í þetta skiptið.

Lag bloggsins: Audioslave, Show me how to life, Já barasta mjög flott lag.

Skarinn kveður í bili, og Já kommenta hehe:p


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 13:03:45 / oskiposki

Skammast mín

Vá þetta er rosalegt! Ekki búinn að blogga í einhverja mánuði sko:o, Ég get ekki ýmindað mér hversu oft ég hef opnað þetta helvítis word og ætlað að birja að skrifa og svo hringir síminn eða ég byrja að syngja og dansa með einhverju lagi hérna og alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir þetta. Allaveg ætla ég að taka mig á og fara hægt og rólega að bæta einhverju inn á þessa síðu og gera hana World Class.

Var að koma fyrir stuttu úr skólaferðalaginu sem var alveg eðal8) Fórum í go kart og allan anskotann og það var geggjað stuð á kveldin, Gleymi aldrei síðustu nóttinni sem að við vöktum og vöktum til að gera einhver prakkarastrik, lét meðal annars helling af tannkremi á hana Beggu:D og gerði margar tilraunir á Möllerinn en Úlfur kallinn ætlaði bara ekki að sofna og var alltaf að öskra á mig þegar eg ætlaði að gera:D Það sem stóð upp úr um kveldið var þegar við sátum allir i kringum hann Benna og allt i einu byrjar hann að hreifa sig svo við lýtum allir á hann ( Hann var steinsofandi) Og lyftir hann ekki sænginni eitthvaðð upp og rekur svoleiðis við að maður hefur ekki heirt annað eins Í SVEFNI!! Við misstum okkur allir úr hlátri, ægi vá þetta var geggjað, Svo var líka látið nokkra lítra af rakspíra á Palla þannig að enginn gat verið nálægt honum.

Það var líka fínt i rafting, Níels var að segja eitthvað gangi þér vel ég vona að þú dettir út úr. Svo lendum við a Stein og eg lít i kringum mig eins og þá vanti einhvern, Er Níels ekki eitthvað sprikklandi í ánni AHHA, Ég hef aldrei hlegið jafn mikið. Einnig létum við Hinrik kláða krem á Hauk tvíbba um nóttina þannig að hann var að brjálast daginn eftir!! Hehe það var æðislegt líka.

Nóg af skólaferðalaginu. Núna er 7. júní og vitið þið hvað það þíðir? 2 DAGAR í HM 2006! Vá ekki tilfining sem að lýsir því hvað mig hlakkar mikið til, Ef að ég mundi fá höfuðögg og lenda í smá dái og vakna þegar HM er búið mundi ég án spaugs kyrkja mig með sjúkragræjunum! Allavega þá birja ég ekki að vinna fyrr en eftir 12 daga or some, þannig að það er ekki mikið að gera þar sem flestir eru birjaðir að vinna. Síðustu 2 dagar hafa farið í það að vakna kl svona 1. borða skyr, horfa út um gluggan i smá stund, fara i tölvuna, jafnvel aftur upp í rúm og svo æfingu, tja frekar leti dagar en allavega frá með deginum í dga ætla ég að vakna 10 og fara á Bjarg í svona 2 tíma, svo i sund og gera eitthvað úr deginum. Núna sé ég að ég er kominn yfir 1 bls í word + það að ég þarf að pissa þannig að ég fer að enda þetta.

Ekki skemmtilegasta bloggið hingað til enda frá svo miklu að segja, en ég fer að skella inn vinum fjótlega og tenglum og þannig heyi. Vona bara að allir sem lesi þetta commenti svo ég verði fljótur að blogga næst..

Lag bloggsins? Humm nokkur koma til greina en ég ætla að nefna, Nick Lachey: Whats Left of Me, snilldar lag sko, einnig Teddy gieger: For You I Will. Frekar róleg og kannski smá hommaleg lög en samt frábær:D

Hetja bloggsins: Hver annar en Peter Crouch, Búin að vera að raða þeim inn fyrir englendinga og ég vona að hanna haldi því áfram.

 

Skarinn kveður í bili:klikk:

Og kommentið!

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 16:25:29 / oskiposki

This is Akward

Sælar mér fannst kominnn tími á eitt stykki blogg hérna, Er ekki buin að vera að gera neitt voða mikið undanfarið skomm, varla búinn að læra neitt og svonna en ég ætla að fara að breyta því núna, fór um páskana 3 í bíó:p á Ice Age sem var geðveik, When a Stranger Calls sem var mjög góð og svo ömurlegustu mynd sem ég hef séð Wolf Greek, Þegar ég og Haukur fórum á when A stranger Calls þá ætlðum við að ljúga til um aldurinn ( ekki erfitt eeh) en já konan var eitthvað ekki að trúa okkur og spurði hvaða ár við værum fæddir og við bara uuu uu, litum á hvorn annan og eftir svona 1 mínótu vandræðanlega þögn þá sagði eg 91!!! Ooo heimskur ég en konan hleypti okkur svo bara inn.

 Já og á Wolf Grekk fór ég með Hauk, Rósu og Lindu og Stelpurnar ætluðu að ljúga með aldurinn og Rósa sagði vera fædd 90, svo ætlaði hún að borga með kortinu sínu og konan bara humm það stendur 91 hér og Rósa bara ægi sko kortið er svo gamalt ahhah Gott Rósa. En já þetta voru ekki sérstakar sögur en ég ætla að koma með eina betri núna.

 

Á föstudagskveldið var stemmari hjá mér og Hauk, vorum reyndar inni alllt kvöldið og nammið fór misvel í suma, við vorum að hlusta á eitthvað geðveikt gott lag og ég eins og ég á til að gera birjaði ég eitthvað að dansa við tónlistina ( vorum held ég að hlusta á Shate That haha) En já svo varð ég eitthvað æstur og birjaðii eitthvað að öskra Haukur svonan já Bónann, Bónann, bónann ég veit þú kannt það, En allavega  þá stend ég á gólfinu og er að berja í rassin á mér og öskra bónann og lít ég ekki fram á gang og sé einhvern skugga? Heirðu er þetta ekki mamma þarna að drepast úr hlátri, ægi fokk þetta var ógeðslega vanræðanlegt atvik og mig langaði að góflið mundi bara gleypa mig, Allavega þá gat Haukur ekki bara let it go og varð hann að hlægja að þessu allt kveldið L Hann hótaði að segja öllum þetta svo ég ákvað bara að setja þetta hingað inn, Nú hugsðiði ábyggielga djöfull er Óskar Þroskaheftur? Er hann veikur? Á hann eitthvað erfitt? Eða eitthvað í þeim dúr en allavega þá ekki vera að spreyja þessu eitthvað um bæinn J

Þetta jafnaðist reyndar út þegar mamma kom inn i herbergið og loftið var ekki það besta og hún spurði kom eitthvað fyrir? Og ég bara ægi Haukur er búinn að vera að drepast í maganum i allt kvöld hehe og hann varð eitthvað vandræðanlegur J Get alveg sagt frá þessu þar sem að Haukur les hvort eð er aldrei bloggin mín J

 

En já ég fer að segja þetta gott í bili J

Skúrkur bloggins: Begga fyrir að vera svona ryðguð.:lol:

Lag bloggsins Artist: Tempeture.  Kvet alla til þess að ná í þetta lag og hlusa á það 3 sinnum þar til að þið dýrkið það

Stolt bloggsins: Humm vera Ka maður er náttúrilega heiður right?

Ef þið viljið fleiri blogg þá er bara að kommenta og vinir og svolleiðis drasl fer að leka hingað hinn.

Big L Rest To Piec.

 

 









 



 


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 00:14:39 / oskiposki

Skari's Playground

Hallú, Ég hef ákveðið að birja með nýja síðu, ég er ekki þessi típíska síðu hóra heldur var lykilorðið mitt a hotmailinu mínu og einhver breytti passwordinu a hotmlalinu minu þannig að ég komst ekki inn á það og týpískt að ég gat ekki munað lykilorðið mitt .

 

Allaveg þá verður þessi síða vonandi miklu betri og skemmtilegri en hin og ætla ég að láta inn eitthvað af myndum hingað inn með tímanum og hafa smá fútt í þessu.8)

Ég ætla að birja bara með þetta blogg en svo ætla ég að láta inn vini og um mig og svolleiðis, ég er nánast buinn með það í word það á bara eftir aðeins laga þetta og ég nenni því ekki núna en verður sennilega komið inn eftir kanksi svona viku

 

Var að keppa í reykjavík í fótbolta ofcourse núna i páskafríinu og það var bara algjör snilld, spiluðum fyrst á moti stjörnunni í brjáluðu veðri sko úti og ég er ekki frá því að þetta hafi verið leiðinlegasti leikur sem ég hef spilað á ævinni! Enginn var að nenna þessu og allir að frjósa og þrátt fyrir jafnan leik laumuðu stjörnumenn inn 2 en Pálmar skoraði síðann eitt fyrir okkur, eftir þetta var farið í sund og lenti ég í ÓTRÚLEGRI lífsreynslu þar, áður en ég fór í sturtu ætlaði ég að kíkja hvar maður átti að ganga innn i sundlaugina í þessu völundarhúsi og eftir nokkra leit fann ég strákana i heitapottinum og ætlaði ég þá að fara inn i klefa, ég labbaði inn og bara what? Þetta er nú eitthvað different hugsaði ég, ég labbaði að sturtunum og fór að skima eftiir palla en sá hann hvergi,  ég fraus síðann þegar ég sá konu standa i sturtunni! Hún öskraði eitthvað og ég bara AAAAAA, og hún bara AAAAA, eftir dágóð öskur hljóp ég út úr klefanum og inn i karlaklefann þar sem að ég róaði mig smá niður, Ég er ekki frá því að þessi mynd eigi aldrei eftir að fara úr húsnum á mér, Afhverju? Afhverju? Gat þetta ekki verið einhver gella? AFHVERJU!!!? Ég er ekki frá því þetta hafi verið stærst kona sem að ég hef séð, ég vill ekki vera ókurteis en segjum bara að þetta var stærsti hippo sem að ég hef séð!!8|


 

 

Um kveldið var mikið um að vera og það vildi þannig til að það voru fullt af enskum gellum þarna, sumir þóttust vera svalari en aðrir og voru eitthvað verðir á hæðinni þeirra og bönnuðu öðrum að koma inn haahha. Allavega þá eitthvað um kveldið er ég á röltinu og mæti strakunum inni hja ensku stelpunum og strákarnir rifu eitthvað í mig og það endaði með að hann Nonni girti niður um mig eheh og ég bara humm this is akward. en eftir þetta fékk ég ekki einn einasta frið hjá ensku stelpunum ehhe.8)

 

 

 

Næsta dag var leikur á móti HK. Í fyrrihalfleik þá komumst við snemma yfir og ég bara vá hvað þessi gaurar eru litlir, en í seinni halfleik segir Pétur hei nú koma alvöru gaurarnir inná og ég bara hehe, hélt að hann væri að kidda, leit svo inna völlinn og voru ekki þessir risar að gera sig tilbúna og svo stóð Kolbeinn þarna frammi. Okei Kolbeinn var nánast mitt átrúnaðargoð á mínum yngri árum hehe, Hann var sjúklega góður á essó og shell mótunum hér í gamla daga og vissu nánast allir hver það var, Mig minnir að ég hafi kallað hann hvítu perluna eða eitthvað í þá áttina eheh. Allavega áttum við ekki mikin séns í þá, en komumst samt yfir i seinni halfleik með góðum sprett hjá danna, enn sóttu þeir og sóttu og Stenþór was on fire í markinu sko, síðann kom ein sókn hjá ökkur og BAMM! Númi kjellin hafði sett hann í skeitinn. Núna voru stjörnurnar orðnar virkilega pirraðar, Haukur tvíbbi tekur síðann þessa ótrúlegu tæklingu á hvítu perluna og perlan öskrar eitthvað og ber Hauk í hausinn” Þá kem ég eitthvað hei Kolli viltu slást? Og hann bara Nei! Og ég bara NEI þeigiðu!!!!  þá ehhe smá draumórar hérna. Allavega þá skoruðu vibbarnir 2 umdeild og ljót mörk í lokinn en leiknum endaði með sanngjörnum eheh sigri okkar J Ég var að pæla að ná i smá tissjú handa perlunni því það lá við að hann færi að grenja eftir leikinn.:cry:

 

Eftir leikinn var lagt heim og þessi ferð var án efa brillíantó.:)

 

Núna eru það bara samræmdu og maður ætlar að rúlla þessu upp:p Er núna í páskafríin og eggin fá sko að kenna á því:):p

 

 

 

Skarinn kveður núna og þakkar fyrir sig.:)

 

Stolt bloggsins: Að hafa skellt perlunni 2 niður í leiknum.8)

 

Lag bloggsins: Eminem: Shake that (feat Nate Dog) einfaldlega frábært lag, hlusta alltaf á það þegar að ég er að klæða mig á æfingar og svoleiðist og ég kemst alltaf í sjúkt stuð.

 

Ef þið viljið að ég bloggi áfram og geri það gott þá er skylda að skrifa í gestó og KOMMENTA á bloggið


 

 

 

White outside, Black inside J

 

 

 

 


» 17 hafa sagt sína skoðun